Ég er búin að vera að liggja yfir árangursögum á youtube, ekkert smá gaman að sjá myndir og sögur af fólki sem er búið að losna vði jafn mörg kg og ég er í heildina. Ótrúlegt alveg! Ef að fólk getur losnað við þann fjölda þá hlýt ég að get losað mig við það sem ég þarf að losna við.
Ég þarf fyrst og fremst að vinna í hugarfarinu, ég er alltaf að bíða eftir því að eitthvað utanaðkomandi gerist og ég fari þess vegna að breyta mataræðinu og lífstílnum en þetta er víst þannig að breytingin kemur innan frá. Ég er alltaf að bíða eftir henni en aldrei kemur hún. Ég get ekki beðið mikið lengur ég þarf því að taka af skarið sjálf og búa til þessa breytingu.
Ég verð 28 ára í næsta mánuði og þegar ég varð 25 ára ákvað ég að ég skyldi ekki vera svona þung eins og ég var þá þegar ég yrði þrítug, í dag er ég samt 15 kg þyngri en ég var þá!!!!




jebb NÓ KIDDING!!
Sumarið 2006 fór ég í átak og missti hátt í 10 kg minnir að þau hafi verið 8 og svo fór ég að vinna og eftir það í skóla og þá datt þetta allt niður, sjoppusamlokurnar voru of freistandi.
Ég ætla ekki að vera 15 kg þyngri en ég er núna þegar ég verð þrítug NÓ VEI HÓSEI!!! Ég finn það nú þegar hvað ég er að sökkva niður í þunglyndi, mér finnst fólk allstaðar horfa á mig og dæma mig og ég veit að þetta er allt að gerast í hausnum á mér. Ég á erfitt með að sinna heimilisverkunum, svitna við það að ryksuga, ég er önug, verð auðveldlega pirruð og þreytt. Ég get verið ljónstygg í skapi og oft bitnar það á börnunum eða manninum.
Ég skammast mín fyrir að borða þegar ég er á meðal fólks, jafnvel þótt ég sé að borða salat, það er eitthvað í mér sem segir að ég eigi að skammast mín. Ég vil helst borða ein þá get ég borðað eins mikið og ég vil.
Ég er alltaf að setja mér ný markmið sem ég stenst ekki, ég er alltaf að segjast ætla að kaupa mér kort í ræktina sem ég geri svo ekki, ég tel mér trú um að ég geti ekki farið í ræktina nema kaupa nýja hlaupaskó, eða ég þurfi að fá mér Ipod say what?!?!
Jæja ég held ég sé búin að segja nóg í kvöld þannig að ég ætla að segja þetta gott í bili.